24 dagar !

Úfff, þetta styttist... því nær sem dregur því raunverulegra verður þetta og því stressaðri verð ég, í gær sá ég að það er búið að bóka fyrir mig öll flug... þá fyrst kom þessi hnútur í magan!! Það er að koma að þessu !!  En annars þá er allt komið nema þetta verkefni sem ég á að gera, er nú komin aðeins af stað með það, byrjuð að safna mér fullt af upplýsingum sem gerir mér auðveldara fyrir þegar ég fer svo að setja verkefnið saman Smile Ég ætla að gera þetta verkefni súper flott, er að spá í að scrappa fyrstu síðurnar, sem eiga að vera um börnin, það á að vera ein síða fyrir hvert barn.. mynd af því og upplýsingar.. held að það verði svoltið töff að scrappa það.. Sé svo til með rest, þar sem það á að vera um sögur og söngva, og activities þá er svoltið erfitt að scrappa það.. en það kemur bara í ljós... Er eimitt að fara á Akureyri á morgun, ætla að tjékka þar hvort ég finni eitthvað scrap dót..

Ég er búin að hafa samband við stelpur sem eru að fara út á sama tíma og ég og verða á svipuðu svæði.. Ein er frá þýskalandi, ein frá suður afríku, ein frá brasilíu og ég held að hin sé líka frá brasilíu, man það samt ekki.. Það er bara ein búin að svara mér, þessi frá þýskalandi... væri geðveikt næs að vera búin að spjalla eitthvað við þær svo að maður verði ekki algjörlega ein í NY í þessa þrjá daga og svo líka fínt að ferðast með einhverjum frá NY – Chicago Cool

Bjarney litli ljúflingurinn minn ætlar að koma til mín um áramótin, er farin að telja niður dagana! Hún kemur 28. Grin Vildi óska þess að ég gæti fengið Sonjuna mína líka til mín en hún verður með fjölskyldunni sinni...  Ég flýg út klukkan fimm mínútur yfir fimm, mánudaginn 11. Janúar.. hehe, er að spá í að fara suður á föstudeginum eða laugardeginum og taka eitt „going away“ djamm Halo

Þangað til næst... Verið hress Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

s.s. going away djamm nr. 17 .. ?? :D hahahah :p ;)   En þetta verður awesome, alveg viss um það.. ;)

Rakel Lilja (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 17:52

2 identicon

Hey Rakel, það hefur kannski verið ástæða til þess að djamma, en núna þegar það er komin alvöru dagsetning þá er það annað :) hehe.. ertu game ?

Sirrý (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 21:00

3 identicon

Heheh já það er rétt... :D   Aldrei að vita nema maður taki eitt lítið edrú djamm.. þarna verður nottla leiðinda köttið byrjað aftur.. :( búhú .. :D hehe

Rakel Lilja (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband